donderdag, februari 05, 2004

rúllugardínur og fleira

búin ad hjóla út í sveit og í gegnum fallegasta gardinn í baenum og sest fyrir framan tolvuna lengs úti í horni í hinu andlausa tolvuherbergi cim. hressandi hvasst á leidinni en hélst thurr. thad er doltid svalara í dag en í gaer, bara 11 stig. kólnar aftur um helgina.

nú, jaeja, ad loknum vedurfregnum verdur farid yfir í annad. vid lukum vid taekniskrímslid í gaer, lex-syn parameter grúppan. b aetladi ad renna yfir hana, en fannst hún ekki alveg grípandi. ég held hún sé samt ansi gód og interessant, fyrir thá sem hafa glóru um hvad hún fjallar. nú fer ég ad einbeita mér ad rannsókninni minni fínu, sem nokkrir krakkar í íslensku fyrir útlendinga heima í hí voru svo elskulegir ad taka thátt í fyrir mig. maeja gardars var nú aldeilis dásamleg ad redda thessu ollu fyrir mig, en ég bíd enn eftir pakkanum frá íslandi, sem foreldrarnir sáu svo um ad koma í póst. hvar vaeri madur án ykkar? hann er merktur eins og farfuglarnir, segir pabbi, en eitthvad gengur erfidlega ad koma honum hingad til mín.

maeja paeja er farin ad lifa tvofoldu lífi. hún á "adan pabba" sem er med "raudan hár" og á heima í bátnum fyrir utan eldhúsgluggann! í thessu lífi á hún enga mommu og býr ein á sjónarhóli. thegar best laetur fae ég ad vera anna. lína langsokkur í medforum hins frábaera leikstjóra maeju reyndal med ilmi í adalhlutverkinu og tónlist í medforum geirfuglanna hefur haft ótrúlega sterk áhrif á barnid. hún á geisladiskinn med tónlistinni og voldum koflum úr leikritinu sem er búid ad vera uppáhaldsid frá thví um jól. svo fór hún náttúrlega á sýninguna medan vid vorum heima og rifjar upp ferdina í leikhúsid mjog reglulega. mikki refur hafdi líka sterk áhrif og amma mús ... en ekki eins og hin frábaera sigurlína ... rúllugardína efríamsdóttir langsokkur, dóttir mín.