donderdag, april 22, 2004

gleðilegt sumar!!!!!

ef við værum ekki í hollandi og ef álfrún væri ekki í svíþjóð þá værum við núna að vakna og kannski að undirbúa brottför af stæði ásamt mæju og kannski bensa. förinni væri kannski heitið til immu, sem stundum hefur boðað okkur vinkonurnar ásamt fjölskyldum heim í kotið sitt þennan dag, sumardaginn fyrsta. allir kæmu með eitthvað á borðið og svo væri blaðrað og börnin léku sér en svo færum við á borgarbókasafnið. þar eru veitt verðlaun fyirr bestu barnabókina og börnin fá "sumarlán". innpakkaða bók sem þau fá að láni en eiga ekki að opna fyrr en heima. álfrún hefur nú stolist til að kíkja, enda fengið bækur sem hún hefur margoft lesið í svona sumarlán.
af því að við erum í hollandi (þar sem veðrið er kannski eilítið nær því sem maður kallar sumarblíðu) sit ég og stari á tölvuskjáinn og bíð eftir því að orðin birtist á skjánum ... þangað til ég þarf að koma mér í skólann þar sem ég mun hitta tvö fórnarlömb í gluggalausu herbergi í kjallara gamals húss og gera á þeim smátilraun.

ég sakna íslands og íslendinga.