hvar er kassettan????
tvær bækur um endur eiga hug og hjarta telpu nokkurrar og eru þær jafnan lesnar báðar tvær áður en ljósið er slökkt og augun eiga að lokast. örlög andanna eru æði ólík. ævi annarrar endar í maga úlfsins ... eða hvað ... því í öllum flýtinum hafði úlfurinn gleypt hana lifandi, og hún mas verpt eggi. þrátt fyrir erfiðan orðaforða og flóknar setningar virðist barnið hafa lært texta þessarar bókar nær orðrétt. ef gert er hlé á lestrinum í miðri setningu bregst hvíslaranum sjaldan ofurminnið. en þessi tveggja ára er stríðinn hræðslupúki. henni finnst gasalega gaman að snúa öllu við og segir því gjarnan að litli fuglinn syngi reiðilega en hvað hér er friðsælt, öndin aftur á móti gaggar glaðlega að kettinum. þó finnst henni algjör óþarfi að láta afa gamla vera reiðan, hann sem er svo sætur (ef lesendur skyldu ekki átta sig á því, sætur-reiður andheitapar). þótt hún sé alveg gasalega hrædd við hunda, ketti, trúða og önnur óargadýr finnst henni afskaplega skemmtilegur parturinn í bókinni þar sem úlfurinn nálgast öndina og kemur nær og nær ... þetta síðasta lesist af dramatík skv fyrirmælum leikstjórans ... og gleypir hana í heilu lagi og hún fellir tár, þe öndin. frábær saga ... enn betri tónlist, en ????
allavegana, í hinni bókinni sofnar önd sæl og glöð hjá froski að loknum góðum göngutúr,
froskur: við verðum alltaf vinir
önd: auðvitað
en dan vallen ze in slaap ... góða nótt

0 Comments:
Een reactie posten
<< Home