reykvískar ágústnætur
er að passa íbúð og ætlaði líka að vinna vinna vinna ... en lenti í staðinn í mat og svo á kjaftatörn um kosti og galla og annað sem lífið hefur upp á að bjóða ... yndislegt að lenda á blístri og blaðri en breytir ekki því að ég er að passa íbúð og ætlaði líka að vinna vinna vinna .
byrjaði á því að vökva blóm og sökum hita og þurrks sá ég að ég yrði að bregða mér út á svalirnar til að svala þorsta þyrstra plantna þar. eigönd þessarar góðu íbúðar gerði mér viðvart áður en hún brá undir sig sínum betri fæti og hélt til best markaðssetta lands ever, við erum að tala um grænland, gerði mér viðvart, já, og varaði mig (felst í því að gera viðvært, æ nó) því að geitungabú gæti verið nærri svalahurðinni. bara opna gætilega! ekkert mál. þess ber að geta að ég er ekki hrædd við og mér er ekki illa við geitunga, þótt mér sé heldur ekkert sérlega vel við þá. hlýddi því og kláraði úr bjórflöskunni út á blómin (vatn í henni sko) og sneri við til að sækja meir ... og lét aftur hurðina, þá innri, ytri hurðin stendur upp (eða út) á gátt. áður en ég treysti mér út í leiðangurinn með vatnið, part tú, sé ég tvo ... þrjá geitunga sveima við dyraopið og hætti bara við að klára að vökva blómin úti. geri það kannski áður en ég held á vit unnustans sem bíður mín úti í heitri ágústnóttinni ... yndislegar þessar ágústnætur.

0 Comments:
Een reactie posten
<< Home