woensdag, december 21, 2005

jólastress?

ég á eftir að:
kaupa jólagjafir,
kaupa jólatré,
skreyta jólatré,
skrifa jólakortin,
senda öll jólakortin,
útbúa jólaísinn,
ákveða jólamatinn,
athuga með jólabúninginn,
þrífa heimilið og stigaganginn,
gera reglulega fínt og fallegt heima,
...
er ég stressuð? nei, reyndar ekki. ég nýtti tímann í gærkvöld til að klára að gera sörur í fyrsta sinn ásamt minni yndislegu dóttur sem verður í svíþjóði um jólin og kláraði svo líka vetrarborgina hans arnaldar meðan ég fylgdist með sólistunum og erninum í varpinu.
jólin koma og verða yndisleg og ég kaupi gjafirnar í tíma og við skutlumst upp á tún eftir trénu í tæka tíð og rennum blautri salmíakstusku eftir helstu flötum heimilisins, þrífum búkinn og verðum komin í okkar fínast púss fyrir klukkan 6 á laugardaginn.
ég hlakka svei mér bara doltið til!