dinsdag, april 10, 2007

upprisan og lífið

ég var einkar kirkjurækin þessa páska. fimm messur og einir passíutónleikar og allt í sömu kirkju, afmæliskirkjunni hennar álfrúnar minnar, sem svo hefur verið kölluð af því að þangað fór hún, alla leið upp í turn, á tveggja ára afmælinu fyrir næstum þrettán árum. herregud! en við hin í fjölskyldunni þjónuðum á einn eða annan veg í þessari kirkju nú um páskana og fannst það hreint ágætt bara. sú stysta, sem er samt orðin nokkuð löng, fékk að bera bæði rós og ljós.
í kvöld byrjar svo stuðið ... fyrsti í h-moll-messu!