woensdag, april 28, 2004

brall í bauk

fyrir skemmtilegan misskilning hefur mér verið boðið að vera með í eldhúsblogginu sem ég kynni hér með. skemmtilegt framtak skemmtilegs fólks á netinu (og líka í raunheimum).
málið er nefnilegasta það að þótt ég hafi óendanlega mikinn áhuga á góðum mat og uppskriftum er ég sérdeilis laus við að vera dugleg við matargerðina sjálf. til þess á ég mann.
reyndar finnst mér alveg reglulega skemmtilegt að elda, sérstaklega með honum, en það er líka huggulegt að láta hann bara alveg um þetta og segja svo bara: þú ert uppáhaldskokkurinn minn.
ég get kannski komið með uppvöskunartips í staðinn ... eða eitthvað.