zondag, augustus 22, 2004

menning

ég var menningarleg með eindæmum í dag:
var heima að pakka niður með manninum mínum,
fór að hitta góða menn af báðum kynjum og á öllum aldri í afspyrnuskemmtilegu 11 ára afmæli,
fór til keflavíkur að kveðja manninn minn og finna villimanninn í sjálfri mér birtast fúlskeggjaðan í sjúklegu svínarifjaáti,
sjá óminn af ljósahátíð við miðbakkann í borginni ljóma á þessum eina og sama himni og við horfum öll á alls staðar,
keyra til borgarinnar og mæta þúsundum aka eftir reykjanesbrautinni, sjálfsagt á leið í bólið? eftir að hafa verið í mannþrönginni á menningarnótt og fara svo af alfaraleiðinni út í myrkrið, alveg óvart, en enda samt í stóra og góða ólympíuhúsinu,
en nú fer ég í bólið, alein í stóru húsi ... samt alveg sæl sko!