woensdag, april 11, 2007

sturta

það er rosalega gott að hafa sturtu heima. miklu betra en að hafa ekki sturtu heima.
þetta get ég fullyrt af því að ég hef prófað hvort tveggja á sjálfri mér bara núna alveg nýlega.
reyndar ekki í fyrsta sinn því fyrir mjög mörgum árum bjó ég við slíkar aðstæður að við þáverandi sambýlismaður minn deildum sturtu með leikaraefnunum í hinni íbúðinni. við bjuggum á annarri hæð, þeir á þriðju, sturta og þvottavél var í kjallaranum og míní-klósettið okkar á stigapallinum á þriðju, eiginlega alltaf skítugt. en þetta var nú á laugavegi og því mikið stuð, með eða án sturtu.
og þetta hafðist alveg. við fluttum á hjónagarða þegar komin var á mig stór kúla af barni. þar fylgdi sturta íbúðinni. og klósett líka.