heima ... og heiman
undanfarna tvo mánuði höfum við átt heima á mörgum stöðum, einum fimm eða sex, vítt og breitt um landið. við höfum notið gestrisni og lífsins og almennt liðið vel, en líf okkar hefur samt verið á þeytingi, tímabundið og bráðabirgða. nú er stóra skvísan komin heim í herbergið sitt í svíþjóð, stutta skvísan í sveit hjá frændfólki, ég flutt enn eina ferðina til pabba og mömmu (gott að eiga góða að) en maðurinn minn er á leið heim til okkar. þe í íbúðina sem verður heimili okkar næsta árið, van den boschstraat í lombok í trekt. þangað hefur hann aldrei stigið inn fæti fyrr. vonandi að hann fái lyklana og allt sé þar í sóma.

0 Comments:
Een reactie posten
<< Home