söngkeppni framhaldsskólanna
ég er sökker fyrir söngkeppnum ... og tók einmitt þátt í forkeppninni í mínum skóla fyrir þá fyrstu (til að standa við gefin heit), en tapaði fyrir palla.
við fjölskyldan horfðum saman á keppnina í gær og nutum misvel. sumt var vel frambærilegt, annað arfaslakt, og fátt eitt mjög gott. mér fannst hann eyþór ingi langsamlega flottastur ... og hljómborðsskutlan með honum algjört dúndur! þau eiga bæði eftir að meika það. ármúlasystkinin fannst okkur slakur, en þó fannst okkur hann fyndinn þegar hann þandi sjáöldurin. rmb lá í kasti yfir því og lék það endurtekið fyrir okkur hin (eru menn annars á einhverju þegar augun verða svona?). rmb gladdist sérstaklega yfir að sjá hana sóleyju sína, sem passaði hana einu sinni. en auk vma fannst mér mh, ma og hraðbraut með fín atriði, og fjölbraut suðurnesja var líka ósköp sæt með vel heppnað lag og texta ... (en þær voru bara ekki alveg í pitsi alltaf, sem truflar doltið upplifunina) og sjálfsagt fleiri ...

0 Comments:
Een reactie posten
<< Home