vrijdag, april 20, 2007

vorboðinn næstljúfasti ... eða pólskir verkamannaflokkar og kanínur

það er krökkt af dimmíterandi unglingum hér í miðbænum. ó, hvað þeim finnst gaman. ekki gömlu konunni sem ég mætti, hún var með stóran snúð og fannst þessi góðglöðu ungmenni augljóslega staðfesta hve heimurinn fer versnandi. hvaðumþað. búningarnir sem blessuð ungmennin hafa valið að skrýðast í dag eru flestir alveg eins frumlegir og undanfarin ár. bananar í náttfötum, kanínur, kötturinn sylvester, mýslur, tígrisdýr, hákarlar osfrv ... voða vel hannaðir, saumaðir og umframallt keyptir búningar. vinninginn í ár eiga án alls efa pólsku verkamennirnir sem eru í bláum vinnugalla, með yfirvararskegg og húfur. það var ekki fyrr en ég var búin að sjá eina þrjá sem ég áttaði mig á að þeir væru ekki ekta. fá tíu stig!