maandag, december 29, 2003

ég er svo heppin!!!

ég þarf ekki að labba heim, ég þarf ekki heldur að bíða eftir strætó í þrjú kortér, ég fæ far með stóru systur ... það er nú munur að vera umkringdur elskandi fjölskyldu!!!

gleðilega hátíð!!!

jæja, þá erum við mætt á ættjörðina ... og þá snjóar líka svona svakalega mikið! reyndi tvisvar við strætó í dag, beið í þrjú kortér og gafst þá upp í bæði skiptin.

fín jól! í hollandi átum við lítið héraskinn með trönuberjasósu (norskur lax á undan og mjúkur marengs með hind og rifsi á eftir) á aðfangadag og opnuðum pakkana (jólabækur, jibbííí!!!), rmb stóð sig vel í því! las gyrði og fengum svo íslenska upplyftingu úr stórborginni á jóladag þegar heine gladdi okkur með nærveru sinni og jólakorti. við gerðum brabrabrjóstinu ágæt skil og kláruðum bæði púrtvínströnuberjasósuna og marengsinn. ekkert mátti verða eftir af því að við vorum á leið úr landi.

lögðum í ann á hádegi á föstudag og vorum komin hálfum sólarhring síðar (með naumindum þó) í fangið á familíunni og höfum notið lífsins lystisemda að hætti hússins.

ég er nú eiginlega búin að gera það helsta, knúsa álfinn, hitta fjölskylduna (að ösku meðtalinni), borða hangikét, laufabrauð, sænska jólaskinku osfrv, fara á ölstofuna, í bíó, búa til engil og renna mér á snjóþotu, opna fleiri pakka og dansa í kringum jólatré, og auðvitað syngja jólalögin með mótó í hallgrímskastalanum. æ, þetta er ljómandi, en ég þarf að hafa smádugleg líka ... best að drífa í því!

donderdag, december 18, 2003

ljúfsárt

mikid er notalegt ad hlusta á dánartilkynningar og jardarfarir ... svo íslenskt.
nú sé ég fyrir mér gula eldhúsid mitt á oldugotunni, myrkrid úti, kertaljós í glugga, epli og mandarínur í írskri skál, gomlu húsgognin frá afa og ommu ... ohh, thad var ekki svona yndislegt thegar ég bakadi smákokurnar hér í trekt um daginn.
en nú verd ég ad fara í tíma, bless íslenska útvarp, heyri í thér brádum ... er ekki netid dásamleg uppfinning? komid til ad vera? ég held thad bara!

donderdag, december 11, 2003

fyrir ommur, afa, systur, fraenkur og fraendur

nokkur uppáhaldsord:

ólínur = ólífur
ígand = ísland
fetakokur = piparkokur (fetaostur í miklu uppáhaldi)
simsoms = simpsons
hóaheinn = jólasveinn
tígrisdýr = tópas

ávún er systir mín!

vid maedgur forum á íslendingajólaball á sunnudaginn ... mikil gledi

maandag, december 08, 2003

barn er oss faett!

hollendingar eignudust prinsessu í gaer ... og er ekkert smákátir í dag. flagga og eru almennt alsaelir ... dásamlegt!

jólahvad?

thad er ískalt og napurt, jólaljós sjást vída á svolum og jafnvel (of)skreytt ofvaxid jólatré hér og hvar í glugga, jólaskreytingar eru vitaskuld í verslunum og sinter klaas daglegur gestur í sjónvarpinu (forfadir ameríska jólasveinsins sem barst med hollenskum innflytjendum thangad í denn). en ... thad vantar alveg jólaskapid í mig. thad er nefnilega sól úti, skínandi falleg birta og ekkert sem minnir á íslenska jóla-skammdegid. jólalogin eru ekki heldur íslensk (ala ellý og vilhjálmur, spurning ad fá lánadan diskinn, diljá!) og allt jólaskrautid mitt heima. en thad eru jólapakkar inni í skáp, og thad er náttúrlega adalmálid, eda thannig.

aetti kannski líka ad kaupa fleiri kerti og baka doltid ... thad gaeti gert trikkid.

vrijdag, december 05, 2003

meira íslenskt

jaeja, thau eiga ad syngja íslenskt í kvold, krakkarnir. verdur spennandi fyrir thá sem geta fylgst med thessu ollu saman, ekki bara hvad thau velja ad syngja heldur líka hvada log thad eru sem hofda mest til sjónvarpslandans.

svo verdur diskó-thema naest og svo studmanna-thema, rosalega er thad eitthvad lítid frumlegt.

heyrdu ... og bjork og sigur rós piltar bara framarlega í honnun dagsins í dag, thau geta tha snúid sér ad thví ef mússíkin klikkar ...

lítil mamma og stór mamma

minnsta stelpan í fjolskyldunni sveiflast á milli thess ad vera fyrirmyndarmódir allra litlu barnanna sinna, gefur theim pela, og eldar oní thaer og matar, gefur theim lýsi og mjólk og allt hollt og gott, háttar thaer og svaefir, breidir fallega oná thaer og syngur fyrir thaer, eda gengur um gólf og segir só,só (eda svona, svona, fer eftir thví hvort hún er í íslensku eda hollensku skapi), og segir theim ad thaer séu saetar og gódar og litla barnid mín osfrv yndisleg ... en svo er hún líka stundum alveg pínulítid barn sjálf, jafnvel apa-ungi (sem hún sá drekka úr pela og fá bleiu í sjónvarpinu), hún er svo lítil. thá faer hún ad kúra í fangi módur sinnar og bara hvíslar, af thví ad hún er svo lítil! svo drekkur hún úr ,,pela'', the ég held á stútkonnunni fyrir hana. ein enn týpan sem hún leikur er skvísan sem gengur um med tosku og er í pilsi eda kjól og allt of stórum skóm af mommu sinni, med teygju í hárinu og er ad fara í baeinn, stundum med litlu dúkkurnar í kerru, stundum ekki ... gaman ad vera tveggja, og talsvert annad en ad vera einsogháls.

donderdag, december 04, 2003

rosottir kjolar

eg vildi oska ad eg vaeri med stod 2! tha gaeti eg fylgst med idol i beinni. eg vidurkenni fuslega ad eg er forfallinn addaandi slikra thatta, jafnvel a thysku. thad var ad visu ekki idol heldur deutsche stimme 2003 (!). frabaerir songvarar og allt sungid a thysku, lika autumn leaves, my way og abba-perlur. jajaja! en keppendurnir voru aedislegir, sistur sa sem vann, reyndar. hann hofdadi beint til thyskra sjonvarpsahorfenda og song baeverskan slagara med tilheyrandi fingrasmellum, klappi og stappi ... ae, svona eins og er a hverju laugardags- og sunnudagskvoldi i thyska sjonvarpinu ,,allir saman nu", hann var ad visu ekki i alvoru buningi i stuttbuxum m hatt, en naestum thvi, i rosottum jakkafotum. frabaert! a bbc vann stelpa sem var 17 eda 18 og alltaf i fylu, en hun hafdi eitthvad fram ad faera, flott stelpa. hun song imagine a lokakvoldinu algjorlega a sinn hatt! nu er hafin vinna i ad gera hana ad sjalfstaedri stjornu, komin med vidio med eigin lagi og texta og allt!

hvernig skyldu islensku krakkarnir reyna ad hofda til islenskra sjonvarpsahorfenda? eru thad birgittulogin, jonsalogin, bubbalogin, siggulogin, selmulogin, bjarkarlogin, megasarlogin (eitt buid) eda kannski spilverkslogin? vaeri frabaert ad heyra einhvern taka bjoluna ... eda nei, ekki gera thad. hann var eitt sinn hippi ...

eg hef annars myndad mer skodun a thvi hver mer finnst hafa fallegustu roddina, en eg gef mer leyfi til ad skipta um skodun.

ohhh, thetta er svo spennandi.

woensdag, december 03, 2003

takk

eg thakka god vidbrogd vid fyrirspurn minni fra 27. nov., lika ur tolvuposti, thid megid baeta vid athugasemdum ad vild.
kannski ber eg upp fleiri spurningar i framtidinni, liklega bara. nu er eg ordin vidfang i rannsokn innan huss, vantar islensk daemi um eitthvad i setningafraedi/merkingarfraedi. gaman ad thessu! en nu er eg farin heim ad huga ad minni eigin rannsokn, jibbi!

dinsdag, december 02, 2003

kissikiss

stóra systir mín kom í heimsókn til litlu systur og sá ad allt var gott!

hún kom sko ekki ein thví ad hún kom med pakka. hún faerdi skvísunni á baenum afmaelispakka, stóran pakka, med tronum sem hún notar til ad thróa medfaedda myndlistargáfu (magnea sagdi ad hún vaeri listraen, og thad er sko ad sýna sig!). auk thess fékk hún nýja bók frá afa og ommu, sem kannski er ekkert sídur hugsud til ad hvetja módurina til dáda á sínu sterka svidi(?), líkamsraekt (thau voru hér um daginn og sáu ad líkamlegt ásigkomulag módurinnar var ekki sem best, thrátt fyrir hjólreidarnar). bókin er baedi stórskemmtileg og brádfalleg og maeli ég med henni vid hvern thann sem vantar hugmynd ad gjof handa barni. hún heitir ég er slanga. nú erum vid ljón og selur og orn og strútur og audvitad slanga á hverjum degi.

en thad besta er samt eftir ... hún kom nefnilega med fleiri pakka, jólapakka, sem bída inni í skáp, fallegir og fínir. eru jólin ekki orugglega á naesta leiti???

fyrir utan allt sem hún kom med (flatbraudid kláradist fljótt, en vid sporum súkkuladid og tópasid) kom hún sjálf og fórum vid saman í baeinn og búdir og skodudum hús og húsbúnad og átum og drukkum og hofdum thad gott. á laugardaginn fórum vid mas til gouda og keyptum ost! ad sjálfsogdu og fórum á lítinn og saetan veitingastad og snaeddum dýrindismáltíd (nammi, namm!!!) í bodi gestsins, og maeja lenti í hollenskum rómans. hitti tveggja ára strák og veltist um gólfid med honum og hoppadi og hló og kvedjustundin var long. kossaflensid, madur lifandi, jahérna, thví aetladi bara aldrei ad linna. en thar sem maeja litla er dama thurrkadi hún sér jafnan samviskusamlega um munninn milli kossa.

hann heitir bas.