woensdag, augustus 31, 2005

mjór master

jess!
búið og gert og allt í kei.
fór með systrum til hollands og naut þess að vera verslunartúristi í amsterdam. fórum líka í konsert gebá og hlýddum á móbæl mótsart, fórum á safn og í síkjasiglingu og síðast en ekki síst í bíó að sjá hinn nýja mr darcy, sem er náttúrlega ekki hinn eini sanni þótt hann sé afskaplega kynþokkafullur.
svona leið helgin við gleði og glaum en á mánudegi var stundin komin. söguleg stund. fyrsta útskriftin úr málvísinda mastersprógramminu í háskólanum í utrecht. allir masterarnir þrír fluttu fyrirlestur um rannsókn sína, fengu flutta um sig umsögn súpersins síns, undirrituðu og fengu afhenta diplómuna sína. þar sem ég var fremst í stafrófinu var ég fyrst og flutti minn fyrirlestur af léttilegri yfirvegun (of mikið lítillæti hæfir ekki meistara) íklædd hælaskóm, kjól og nýjum jakka (fyrsta flíkin sem keypt var í ferðinni). ted sagði alls konar fallegt um mig og forseti deildarinnar afhenti mér svo diplómuna mína og allt sem henni fylgdi.
ég var orðin master!
svo komu hinir fyrirlestrarnir, annar sammeistara minna útskrifaðist kúm láde, eins og við var að búast.
en ég er orðin master, og svei mér þá, ef ég hef ekki bara hækkað við tignina ... nema það séu hælaháu stígvélin sem ég gaf mér í útskriftargjöf sem valda því!

vrijdag, augustus 26, 2005

bráðum

fer ásamt fríðu föruneyti í fyrramálið á vit meistaranafnbótarinnar. hef helgina til að undirbúa mig andlega.

woensdag, augustus 24, 2005

spennandi

vinkona kemur þér á óvart í dag.
eitthvað óvenjulegt gerist hjá vini eða í hópi sem þú tilheyrir.
þetta er ekkert stórvægilegt, bara forvitnilegt.
stjörnuspekin mín í dag á mbl.is

donderdag, augustus 18, 2005

hálsbólga og pipar

mjór master, frekar mjór en master í augnablikinu. nótt við dag í bælinu en ekki við tölvuna! ég semsé lagðist ógeðslega veik og gat ekki kyngt og hríðhoraðist (eða þannig), en fyrir vikið er ritgerðin ókláruð, sem er að sjálfsögðu bévað. en litla ljósið hugsaði vel um mömmu sína og hlustaði mig í bak og fyrir og spurði af hverju ég væri með hálsbólgu, sem ég vitaskuld gat ekki svarað, en hún vissi það nú, stúlkan sú. "stundum ertu með hálsbólgu og stundum ertu ekki með hálsbólgu." nokkuð til í því, sko. svo sagði hún "mamma, þú ert yndisleg." en ég, ég gat ekkert sagt. en hún er sannarlega yndisleg.
...
í kvöld bauð móðir mín upp á jarðarber með rjóma og sykri í eftirrétt. rmb valdi sér stærstu hrúguna af ferskum berjum og svo fengum við þrjú stóru okkur rjóma út á berin og þau ben og mamma fengu sér líka sykur út á sín. rmb bað líka um mjólk út á sín ber en spurði mig hvort ég ætlaði ekki að fá mér pipar og fékk sér þá ekki heldur.

zondag, augustus 14, 2005

ertu þá farin?

góður vinur minn skrifaði eitt sinn góða ba-ritgerð með þessum titli. frábærir, báðir.
ég semsé fór og er komin aftur. rétt tyllti mínum fiðrildisfæti hér í borginni minni um síðastliðin mánaðamót en flaug svo til suðrænni landa og hvíldi heilabúið, og fiðrildisfótinn náttla, fáeina daga en svo er ég aftur komin til stuttrar dvalar og legg nú nótt við dag til að ganga frá meistarastykkinu. átakinu er að ljúka, en ég verð sennilega meiri master en mjór. það er nú svo.
allt um það, bæjó spæjó.

maandag, augustus 01, 2005

komin

til íslands!