vrijdag, mei 26, 2006

fortíðin


hér í vinnunni hafa starfsmenn ornað sér við minningar frá liðinni tíð að undanförnu. liður í þessari þemaviku var myndasýning af mörgum okkar frá því í bernsku.
hér er ein myndanna.
glöggir lesendur sjá örugglega að stúlkan var að læra saturday night fever dansana hjá heiðari (frekar góð, sko).
kjólinn saumaði mamman. mér finnst hárgreiðslan frábær.

dinsdag, mei 16, 2006

dónaorð

dóttla mín er á dónaorðaskeiðinu. henni finnst ógeðslega fyndið að segja rass, prump, kúkalabbi osfrv. um daginn romsaði hún út úr sér þvílíkri bunu klúryrða að annað eins hefur sjaldan heyrst:

rass, andskoti, kúkur, piss, prump ... rop

já, dónaskapurinn á heimilinu ríður ekki við einteyming!

donderdag, mei 04, 2006

önnur merki sumarkomu

þegar kona hefur keypt sér hvíta sumarkápu.