fáránlegt!
dóttir mín er í prófi þar sem hún mun þurfa að svara rangt til að fá rétt.
hversu fáránlegt er það að kenna börnum að sem og er séu fornöfn?
í hringiðunni
dóttir mín er í prófi þar sem hún mun þurfa að svara rangt til að fá rétt.
í nótt vaknaði ég við að dóttir mína 3 ára grét og leið illa í rúmi sínu. þunnt er móðureyrað, hugsaði ég og fór að gæta að litlu hnátunni minni. þar sem ég var heldur svefnþurfi bauð ég henni að koma með mér í rúmið mitt. hún þáði það. þangað komnar lágum við í okkar venjubundnu krulluknúsustellingu og eftir smástund segir litla telpan: mamma, mig dreymdi svo hræðilega. "hvað var það, elskan mín," segir móðirin verndandi tilbúin með særingarþulurnar sem duga best á tröll, þjófa og aðrar forynjur sem herjað geta á s0fandi börn. telpan svarar: pabbi var að klára allan matinn minn.