tangó
í kvöld eru tangótónleikar á nasa ... úúúúú ég hlakka til!!!
í hringiðunni
síminn hringdi í morgun þegar ég var nýbúin að slökkva á vekjaraklukkunni. þetta var úr skólanum og spurt var hvort unglingurinn væri lagður af stað ... sem var ekki raunin. það var klukkutími síðan vekjaraklukkan hringdi ekki tvær mínútur.
litla telpan var nú frekar stór þar sem hún gekk keik og tók sér stöðu í röðinni með bekknum sínum í vesturbæjarskólanum nú áðan. og í bekknum hennar verða 19 börn. ég meðtók nú ekki öll nöfnin, en örugglega nöfn flestra stelpnanna, enda margar þeirra í leikskóla með rmb. skondið þykir mér að meðal stelpnanna eru auk ragnheiðar maríu þær hrafnhildur maría og hrafnhildur sif og hildur og mathilda ása. frekar lík nöfn. en svo eru líka thelma lind og salóme og birta björg og mist og una. veit ekki hvort það er þar með upp talið en alla vega er ljóst að hin gömlu góðu hildar/heiðar-nöfn hafa verið vinsæl árið 2001.
á leiðinni heim úr morgunskokkinu heyrði ég vekjaraklukkur hringja og fólk bylta sér í rúmunum. kannski hafa einhverjir vaknað við másið í mér og þungu skrefin ... hef ekki náð að losa mig við hlussusyndrómið, en það er allt í vinnslu.
við hæfi að hafa fyrirsögnina á erlendu máli til að minnast þess þegar heilagur andi kom yfir postulana svo að þeir töluðu tungum ... en nú mörgum árum síðar er frí af þessu tilefni á mánudegi og þess vegna er ég í vinnunni!
ég hlakka til að þurfa ekki að koma við í þvottahúsinu þegar ég kem heim af ölstofunni. kannski fjölgar ferðum mínum þangað ... úr tveimur á ári.
það er ekki alltaf áfangastaðurinn sem skiptir máli heldur leiðin þangað,
pabbi minn elskulegur verður sjötugur á föstudaginn en af því að við tvær syngjandi systurnar erum á leið til danmerkur í fyrramálið að syngja h-mollinn sundur og saman verður honum haldin veisla í dag!!!
við fótskör jóns sigurðssonar situr missaklaus pöpullinn og sleikir sólina
það eru nokkur ný eða nýleg hjól frammi í anddyri. og búið að senda harmonikkutónana sem hljómuðu fyrir utan ríkið úr landi.
gekk í vinnuna á morgun. 551 m. þar með er ég orðin þátttakandi í landsverkefninu "hjólað í vinnuna". en ég geng alltaf í vinnuna, sama hvernig viðrar. á leiðinni í vinnuna kem ég oft við í leikskólanum og skil barnið eftir þar. þarf ekki einu sinni að leggja lykkju á leið mína til þess.