fjallið kemur til okkar!
í hollandi er almennt lítið frí gefið í kringum páska. rmb er tam í leikskólanum núna og á morgun eru margar verslanir opnar, en hvorki há- né leikskóli.
á íslandi hefur dáltið annað verið uppi á teningnum á þessum árstíma. páskarnir eru vitaskuld aðalhátíð kirkjunnar og því jafnan mikið um kirkjutónleika og -heimsóknir. þá gefst og tækifæri fyrir fjölskyldur að hittast og kúra saman.
í stað þess að kúra með allri stórfjölskyldunni eins og oft, verðum við litla fjölskyldan nú sameinuð frá og með laugardagssíðdegi þegar álfrún litla kemur alein alla leið frá svíþjóð. það verður yndislegt. (ég hugsa að ég verði að fara að kalla hana litlu ... hún er sko á leið með að vaxa mér yfir höfuð.)
ljóslega söknum við samt stórfjölskyldufílingsins og hallgrímskirkju okkar, en við kunnum ráð við þess háttar klúðri því að á morgun kemur til okkar í mat faxaskjólsklanið eins og það leggur sig með sjálfan kantorinn í fylkingarbrjósti.
við sláum því tvær flugur í einu nettu höggi ... jibbííí!





