þegar rmb var að klæða sig í fötin fyrsta skóladaginn sagði hún:
mér líður alveg eins og ég sé að fara í leikskóla, samt er ég að fara í skóla!
---
það þarf ekki að vera djúpt og merkilegt innihald í bókunum sem hún dóttir mín fær heim að lesa þessa fyrstu skóladaga til að hún lesi úr þeim djúsí tengsl og sambönd. rmb les milli lína og blaðsíðna og ræður í myndirnar sem fylgja ekki síður en fátæklegt ritmálið ... sem henni finnst nú stundum asnalegt, sérstaklega í allra fyrstu bókunum (eftir gloppóttu minni móður):
ási á net.
göt eru á neti.
þetta er asnalegt, af hverju stendur ekki "göt eru á netinu"?
eða:
sísí á sám og sísí á rósu.
asnalegt, hahaha, þetta á að vera "sísí á líka rósu" eða "sísí á sám og rósu"
-----
það er laugardagur, örugglega rigning, og við hjónaleysin erum með rmb í bílnum á leið í parkettbúðir. gaman. djass streymir úr viðtækinu. síðan er afkynnt og þá heyrist í rmb aftur í:
er þessi kona með gleraugu?