maandag, februari 28, 2005


þar sem ég er bæði málfræðinemi og móðir finnst mér að ég ætti að vera duglegri að koma gullkornum barnsins míns á framfæri við ykkur sem saknið hennar og fyrir okkur sjálf til varðveislu. ég hyggst bæta úr þessu svo að sennilega verður þetta að miklu leyti "barnablogg" á næstunni. hér fylgja tvö dæmi:

með síðdegiskaffinu í gær:
pabbinn við barnið: "benedikt" er konunafn á frönsku.
barnið við pabbann: "ragnheiður maría" er konunafn á egilsstöðum.

með morgunmatnum í morgun:
verið var að ræða eignarhald á búsáhöldum á heimilinu, en eins og lög gera ráð fyrir eiga eigendur hússins mest af því. þó eru undantekningar, td á rmb skeið og hníf sem hún fékk í skírnargjöf frá sigga frænda sínum og fjölskyldu hans (á egilsstöðum einmitt). sú stutta sagði þá að við skyldum setja skeiðina og hnífinn ásamt öllu hinu dótinu sem okkur tilheyrir í bílinn ... þagði smástund en bætti svo við "þegar við eignumst bíl".  Posted by Hello

donderdag, februari 24, 2005

hallóvín?

var að borða himneskt rísottó með graskeri og pistasíum ... og restina af brauðinu með sólþurrkuðu tómötunum.

woensdag, februari 23, 2005


túlípani í túlípanalandi Posted by Hello

sigsérsín

við matarborðið í kvöld:
ég: þorri þorskur segir: öll börn eiga að vera dugleg að taka lýsi og borða fisk.
rmb: borða sig?

hlaupabrauð

allt í gúddí hér í trekt!
missti að vísu af jógatíma í morgun af því að ég villtist en fer bara í fyrramálið í staðinn. er enn að jafna mig eftir pilates á mánudaginn, svona gott-vont. hljóp samt í dag. ss allt á áætlun ... og ég hríðhorast!
búin að lesa svolítið í dag og svo er brauð með sólþurrkuðum tómötum og lauk á leiðinni í ofninn eftir klukkutíma til tvo. íslenskur þorskur í kvöldmatinn. okkur fer annars að vanta þorsk, ef einhver skyldi vera á leiðinni hingað ... má kippa með sér maldon-salti líka!

dinsdag, februari 22, 2005

hollt húsráð

ég er hætt að kaupa dýr og ógeðsleg baðhreinsiefni. í staðinn sker ég sítrónu í tvennt, tek annan helminginn og nudda honum yfir bað, vask og blöndunartæki ... jafnvel flísar! ég get svarið það að baðið glansar af hreinlæti og ilmar náttúrlega líka! og ekki spillir tilhugsunin um að barnið manns sé ekki að svamla í eiturefnum heldur náttúrulegum sítrónusafa.
es. ráðið er úr mbl. frá ráðgjafastofu heimilanna

zaterdag, februari 19, 2005

gleðilegt ár!

já, loksins er það hafið, árið sem er svo gleðilegt og frábært og upplífgandi ... en það tók tíma að starta því. ég er sannfærð um að ég sé nú búin að fá minn skerf af ólukku þetta árið, hjólastuldur, eldhúsflóð með tilheyrandi skemmdum og tilkostnaði, rafmagnslaust bað og eldhús, ónýtur búnaður í vinnu, veikindi ... allt búið. á nýja gleðilega árinu hirði ég vel um húðina, hleyp þrisvar í viku (þegar byrjuð) og stunda pilates og jóga, vinn vel og skipulega að meistaraverkefni, verð sniðug og góð móðir og yndisleg sambýliskona og voða lukkuleg og smört!

dagurinn í dag er alveg lýsandi: við pæjumæðgurnar í pilsum og spariskóm erum búnar að þrífa hæðirnar tvær og leika ýmsa leiki og erum á leið út að versla í kvöldmatinn.
úti skiptast á skin og skúrir enn hér er bara sól.

donderdag, februari 17, 2005

hjarta spaði tígull lauf, þú ert með opna buxnaklauf

ég missti af þessu. ég á ansi athugula og viðbragðsgóða systur! böðvar kann henni áreiðanlega bestu þakkir

karlmenn!

ósköp tilbrigðalaus dagur hjá minni, búin að sitja hér við tölvuna meira og minna, pirrast og fíflast yfir þessari ritteppu og svona, eins og gengur þegar maður er á síðustu metrunum með eitthvað sem átti að vera löngu lokið, en bara er það ekki af ýmsum skiljanlegum sem óskiljanlegum ástæðum.
það sem upp úr stendur er bónorð sem ég fékk nú síðdegis. "eigum við að giftast okkur?" var sagt í hálfum hljóðum í innilegu faðmlagi. svo giftumst við okkur og dönsuðum, eins og prinsar og prinsessur gera og svo fór prinsinn, ég, auðvitað að vinna ... prinsessan mín sefur nú ein í turninum sínum.

woensdag, februari 16, 2005

kaze wo atsumete

ég hlusta bara á mússík og klappa með, bara hress í ryki og rusli og reportræting ... ekki búin enn ... en kaze wo atsumete bætir hressir kætir!

vrijdag, februari 11, 2005

hús og híbýli

þegar ég flutti fyrst almennilega að heiman bjó ég ásamt kærastanum í langri og mjórri íbúð með tvöfaldri lofthæð. gengið var inn í húsið úr hinu dýrðlega traðarkotssundi. íbúðin var á evrópskri annarri hæð, stofa, eldhús, svefnherbergi. salerni og sturtu deildum við með leiklistarnemunum á efstu hæðinni, klósettið var á stigapallinum fyrir framan hjá strákunum en sturtan í kjallaranum, ásamt þvottavélinni sem við höfðum aðgang að. við höfðum ekki mikið milli handanna, en áttum alltaf kartöflur frá pabba og skutumst svo út í kjötbúr péturs eftir lauk til að reiða fram dýrindismáltíð. þáðum öll matarboð sem buðust og fögnuðum hverri kertasendingu mömmu sem barst. námsmenn í götóttum sokkum. mér fannst þetta frábært hlutskipti og hafði engan áhuga á að komast í meiri álnir (ólíkt himma sem söng hástöfum "ef ég væri ríkur" ... sem hann er sennilega núna). verð samt að viðurkenna að mér létti stórum þegar við fengum inni á hjónagörðum. ég hafði nefnilega loksins látið verða af því að kaupa fokdýran pissustaut til að athuga hvort ég væri ófrísk (ji, ég laumaðist upp með þvílíkri leynd ... hvað ef himmi eða valur kæmu fram og færu að spyrja út í þennan staut? hahaha). sumsé ég gat ekki hugsað mér að bjóða barninu í maganum mínum upp á þessar aðstæður, og hélt reyndar að ungbarnaeftirlitið myndi hreinlega banna okkur að búa þarna með barnið!
það var gaman og gott að búa á laugavegi fimm og ég hef taugar til þess og hef gaman af að sýna áp gluggana. það verður eftirsjá eftir þessu sérkennilega húsi.

woensdag, februari 09, 2005

illu er best aflokid

thad góda vid leidinleg mál er hvad madur verdur gladur thegar theim lýkur. sannleikurinn býr sannarlega í málsháttunum! í ólukkuástandi undanfarinna vikna hefur mér tekist ad hella mér út í hvert leidindamálid eftir annad sem ég hafdi svo lengi verid haldin faelni gagnvart. svo lýk ég skrímslunni í vikunni og eftir thad verdur lífid taumlaus hamingja.
gledi, gledi, gledi,
gledi líf mitt er
thví ad jesú kristur
thad gefid hefur mér
ég vil ad thú eignist thetta líf
thví ad thad er: gledi, gledi,
gledi alla tíd
(er thetta enn einkennissöngur mh?)

minning

siggi afi er dáin svo ad nú eiga jónína og anna bara hólmgeir afa. siggi bald var skemmtilegur. minnist thess alltaf thegar vid sólveig vinkona mín, thá á sautjánda ári, sátum og hlustudum á sögurnar hans og hlógum og hlógum í fimmtugsafmaeli födur míns. tókum svo straetó heim og hlógum meira. ég man ekki sögurnar hans, en ég man hvad hann var skemmtilegur, tharna og vid fjölmörg önnur taekifaeri, og thví brosir madur alltaf ósjálfrátt thegar madur hugsar um sigga bald. fjölskyldunni allri sendi ég innilegar samúdarkvedjur, blessud sé minning sigga bald.

dinsdag, februari 08, 2005

ástríki

á hverjum degi tharf ég ad spyrja: hver er ég? og ekki bara einu sinni, heldur oft! og hver segir mér thad? nú audvitad sú sem öllu stjórnar á heimilinu, hún litla dóttir mín. hún er ýmist álfrún, jónína, anna, áslaug, kaeja, lína, ég eda einhver annar áhrifavaldur í lífi hennar. ég fae alltaf úthlutad hlutverki sem nánasti adstandandi, mamma, systir, besta vinkona, nú eda bródir í tilfelli önnu (tommi). og hún, hver svo sem hún er, er svo gód vid mig. kyssir mig og klappar mér allri og segir fallegustu hluti í heimi. en thad gerir hún líka thegar hún er hún sjálf. ég veit ekki nokkurt barn sem er jafn kelid og ástríkt baedi í ordi og verki. hún tekur "knúserí" oft fram yfir leik. og hún aetlar ekki ad verda stór af thví ad hún vill alltaf eiga mömmu (gildir reyndar sama um stóru litlu stelpuna mína).
mér bara datt thetta í hug af thví ad ég var ad fá póst sem heitir "7 signs that your child loves you" ... ég efast aldrei.

hvítt - wit

skemmtilegt ad hjóla í klukkutíma í morgun. úti í sveit rann himinn og jörd saman í eitt. hvít jörd og hvít tré og hvítur himinn og naestum hvít sól. ótrúlega fagurt, en kalt. mér er enn kalt.
...
rmb sat aftan á hjólinu og sagdi hvítt, wit, hvítt, wit. henni finnst erfitt ad bera nöfnin á sumum litum saman á milli mála, brúnn verdur ad fá ad vera graenn. thad er líka stundum erfitt ad muna nákvaemlega hvad hlutirnir heita á íslensku, hvort thad er svip eda skip sem siglir um höfin td. ekki einfalt líf.
...
skýrsluskrif eru ekki eins slaem og ég bjóst vid. bara ágaet eiginlega.

zaterdag, februari 05, 2005

útlöndin heima hjá mér

sólin skín á múrsteinsrauðu húsin á pieter bothstraat og litla lombokkrikjuturninn, himinninn er heiður og blár, örfáir gangandi og hjólandi vegfarendur hér fyrir utan eru hæfilega léttklæddir. ég held að við mæja mín munum skemmta okkur vel í dag úti á leikvelli hjá fallegu myllunni og síkinu og á kanaalstraat. kanaalstraat er þekkt gata um alla trekt og þótt víðar væri leitað. hingað koma hollendingar, innfæddir sem innflytjendur, um langan veg til að kaupa grænmeti og ávexti til vikunnar, og jafnvel ódýrar kjúklingabringur. fá sér skyndibita að hætti hverfisins í einu hinna fjölmörgu bakaría þar sem boðið er upp á shoarma og türkse pizza. á götum og gangstéttum liggja kramdir ávextir sem hafa oltið úr kössunum sem þeim er hlaðið í og standa fyrir utan verslanirnar eða bíla bændanna, enda allt morandi í óinnpökkuðu og ósteríliseruðu grænmeti og ávöxtum, margt af því hef ég aldrei áður séð og verðið er ekki hátt. hér er heldur ekkert endilega mikið lagt upp úr útliti, merkingum eða hreinlæti, ef rúða hefur brotnað er bara krossviðarplata sett í staðinn, og látin vera í marga mánuði, enda yrði ný rúða bara brotin að kveldi. verslanir auglýsa sig með vörunum fyrir utan, inni er jafnan krökkt af fólki, alltaf, í öllum verslununum. hillur með baunum og hnetum og alls konar mat sem ég hef aldrei séð, margt örugglega ekki að mínum smekk. við lítið borð við innganginn situr maður, klæddur eftir veðri, með vog og peningakassa og afgreiðir viðskiptavinina hratt og örugglega ... og kassinn fyllist af peningum. hér er bílum lagt hlið við hlið á götunni, bílstjórarnir hlaupa inn að versla og keyra svo af stað. leið 4 bíður. á nokkurra klukkustunda fresti er kallað til bænagjörðar í kallkerfi á moskunni, kuflklæddir menn ræða eitthvað mjög merkilegt sín á milli, konur með blæju ýta fallegum börnum sínum á milli grænmetis-, brauð- og kjötverslananna í leit að bestu kaupunum. en hér eru líka fataverslanir (hollenskar, indverskar, marokkóskar) og skranbúðir og blómabúð og vínbúð og ostabúð. íbúar hverfisins tala 30 mismunandi tungumál og alþjóðlega málið sem sameinar alla, eða næstum alla, er hollenska.
þetta er ekki holland, þetta er lombok.

woensdag, februari 02, 2005

ragnheiðar

enn á ný, blogg tileinkað ragnheiðum: ragnheiður gröndal er uppáhaldssöngkonan mín og söngkona ársins og á linkalistann bætist ragga eiríks, uppáhaldskynlífsfræðingurinn minn og góð vinkona.