donderdag, juni 30, 2005
hollt og gott
mmmm, namminamm!
er að borða heimabakað speldisbrauð (himneskt.is) með lífrænu avókadói og tómötum með nýmöluðum svörtum pipar og maldonsalti. vatn á brúsa. rosalega gott!!!!
...
nú er rétta veðrið til að hlaupa: ekki of heitt og svona hálfskýjað.
woensdag, juni 29, 2005
dagur fjögur
35, hálffertug, XXXV ... en þó bara 21.
frábær afmælisdagur! hitti engan sem ég þekki, ekki sálu, en hef samt notið dagsins í klessu, enda tókst mér að kría út kveðjur símleiðis, msn-leiðis, kommentaleiðis og tölvupóstsleiðis frá fjölmörgum, talaði líka í síma við flesta sem mér eru kærstir, fékk söng og mágur minn orti um mig vísu auk þess sem mér barst risastór blómavöndur frá "fólkinu heima". rúsínan í pylsuenda dagsins (sem er kominn að kveldi, og alls ekki öll nótt úti enn, en við leyfum því sem þá gerist að heyra kvöldinu til) var svo hlaupanótan með duran duran! ég varð unglingur á ný og hugsaði um hvað rodsjer teilor væri nú sætur (af því að ég var svo "jarðbundin og skynsöm stúlka" ... (sjá umfjöllun pönkans um duran 5. júní sl)). þegar ég sá félagana í þætti jónatans ross í vetur og sá að roger er ekki bara sætastur heldur líka skynsamastur, kemur best fyrir og er almennt frábærastur þeirra allra. fyndin uppákoma þegar jónatan spurði hver hefði verið mesti gæinn og símon og jón urðu vandræðalegir (símon varð nú eiginlega bara hlægilegur), greinilega einhver spenna þar á milli.
þótt einbeitingin við vinnuna sé ekki nærri eins góð og hún ætti að vera held ég kúrs og er enn sannfærð um að ég muni skila æðislegri mastersritgerð!
...
og mér líkar einveran miklu betur en ég bjóst við ... enn þá.
afmælisbarnið ég
já, gaman að fá góðar óskir og kveðjur! takk, allir. og ekki ónýtt að fá orta um sig vísu! takk, mágr!
Þú skínandi kona sem skilur svo vel
að skemmtun mun lífinu breyta.
Með kímni og húmor þú kætir vort þel
konan sem fjaðrir nú skreyta.
eins og lesa mátti í síðustu færslu sækist ég eftir viðurkenningu, en ég hef líka mjög gaman að hrósa öðrum fyrir það sem þeir gera og það skal gert nú, ekki bara í tölvupósti eins og oft heldur á þessum vettvangi líka:
hrósið fá þjónustufulltrúar kbbanka í aðalstræti! þær eru hreint út sagt frábærar. bregðast alltaf fljótt við og ... ég bara hreinlega gæti ekki án þeirra verið. meinaða. það nýjasta er afmæliskveðjan sem ég fékk í dag! vúndersjön.
afmælídaag!
afmælisbarn dagsins
þú átt gott með að skilja fólk og þar af leiðandi er tímasetning þín frábær í tali og framsetningu.
þú ert gædd mikilli kímnigáfu og húmor. þú ert óbæld og lætur tilfinningarnar oftast ráða ferðinni.
þú kannt vel við þig í sviðsljósinu og sækist eftir viðurkenningu.
þú ert gædd mikilli kímnigáfu og húmor. þú ert óbæld og lætur tilfinningarnar oftast ráða ferðinni.
þú kannt vel við þig í sviðsljósinu og sækist eftir viðurkenningu.
dagur þrjú
ókei, ekki frumlegt, og komið langt fram á dag fjögur í þokkabók ... nei, ég meina þokkabót, sem er einmitt afmælisdagurinn minn.
en dagur þrjú var fínn í meginatriðum: vaknaði, fór á fund, tók djobbi eins og áður hefur komið fram, vann (ekki nógu mikið nema í huganum ... sem er nú reyndar stór partur af þessu öllu saman), hljóp og svoleiðis, svo kom berit og við borðuðum saman salat með halúmí osti á svölunum og drukkum með því dreggjar dagsins. horfðum á helminginn af passage to india og átum helminginn af jarðarberjaafmæliskökunni sem hún bakaði handa mér, þessi elska! hún söng líka fyrir mig á þýsku.
en nú fer ég að sofa og hlakka gríðarlega til að lesa allar frumlegu afmæliskveðjurnar sem ég veit að munu streyma til mín ... o, hvað það verður gaman. svo veit ég að amk tvær telpur (eða öllu heldur prinsessa og unglingur) ætla að syngja fyrir mig í sínum dalakofa.
en meira um það í pistli dags fjögur.
dinsdag, juni 28, 2005
maandag, juni 27, 2005
dagur tvö
þrátt fyrir mikla skemmtan í gær og lítinn svefn fór ég á fætur við fyrsta hanagal í morgun. best að rjúka sem fyrst af miðhæðinni ... þar er ekkert gaman að vera svona alein, eins og mér finnst nú kúrið annars gott. hér niðri tók við smátiltekt, kaffisopi og svona, en einhverra hluta vegna tókst mér ekki að einbeita mér nógu vel að vinnunni! eftir sms frá unnustanum á íslandi um þá geðshræringu sem hann komst í við að sjá esg skokka í árbænum ákvað ég að snúa vörn í sókn, bakaði speltbrauð, fór svo og keypti í kartöflu- og gulrótarsúpu, snæddi og skokkaði svo smá. nú er vinnan hafin ... og svo fer ég bara að sofa. ekkert rugl sko!
zondag, juni 26, 2005
dagur eitt
rmb finnst æðislegt að tala í símann og segja frá því sem henni finnst merkilegast í lífi sínu hverju sinni. í gær þegar hún talaði við þorbjörgu frænku sína var það eftirfarandi:
ég er að fara til íslands með pabba mínum og fara í sumarbústað með jónínu, önnu, guðrúnu og gísla og álfrúnu systur minni.
ég á nýja flugvélartösku sem mamma gaf mér.
ég á harry potter vídeó eins og systir mín á bók.
semsé, stemmninginn gríðarleg.
það var erfitt að fara að sofa í gær. svo vaknaði hún illa í nótt, öskraði og enginn fékk við neitt ráðið. greyið skinnið. pabbinn fékk níels apa í lið með sér til að róa hana eftir mjólkursopa og klósettferð og svo svaf hún eins og engill. þegar hún svo vaknaði í morgun rauk hún á fætur (sem er ekki alveg í karakter) og spurði: eru þau komin? hver? spurði ég þá. guðrún og gísli. var svarið. rmb var komin til íslands í huganum og á leið í sumarbústað með systur sinni, frænkum og frænda. fram að brottför hljómaði hún eins og bára litla í benna og báru. "nú er ég tilbúin, mamma mín," en, nei. fyrst þurfti hún að fara í sturtu. svo þurfti að þurrka fötin betur, borða morgunmat, greiða hárið, pakka meira niður ... osfrv. en hún hélt þolinmæðinni allan tímann og góða skapinu. þegar pabbi hennar brá sér út til að færa hjólið sitt á betri stað var sú stutta ekki lengi að grípa nýju töskuna og rjúka út ... en við vorum ekki tilbúin. þessi ferð til íslands hefur að sjálfsögðu verið mikið til umræðu undanfarið og þess vegna fannst stúlkunni frekar undarlegt þegar loksins átti að leggja af stað og ég bjóst til að fara með þeim, hún vissi, jú, að hún var bara að fara með pabba sínum. það var ekki beint sorgmædd eða leið lítil stúlka sem kvaddi mig á schiphol. "en svo kem ég aftur" sagði hún móður sinni til hughreystingar og veifaði og sendi mér fingurkossa eins lengi og hún gat, brosandi út að eyrum.
...
skrítið, að vera svona alein í útlöndum, en samt heima hjá mér. hefur sína kosti og galla eins og annað náttla. td var ágætt að geta laumast í autt sæti í lestinni í stað þess að þurfa að finna stað sem rúmaði barn, kerru og annan fullorðinn, eins og gjarnan. nú er spurning hversu vel mér vinnst í þessu andrými. búin að breyta í stofunni svo að ég sjái út um gluggann þegar ég sit við. en nú þarf ég amk að drekka góðan kaffibolla úti í garði og taka svo til hendinni í eldhúsinu. í kvöld er velkomst-partí hjá berit og nino.
donderdag, juni 23, 2005
buin i bili
jamm, nu fer eg ut i solina og stigin 28. saeki skutluna i haskolann/leikskolann og vid skellum okkur a bakkann ...
umbreytingar
tuttugasta og niunda agust nk verda timamot i lifi minu og minna.
thann dag mun eldri dottir min formlega umbreytast i taning ad mer fjarstaddri thar sem eg mun formlega umbreytast i meistara vid serlega serimoniu her i trektarborg.
thar med er komin endanleg lokadagsetning a atakid mitt mjor master 05 (og eg sem freistadist til ad fa mer feita pitsusneid i hadeginu).
en til ad thetta standist nu allt saman verd eg vist ad halda a spodunum vid ritun meistarastykkisins sem, ef mer skjoplast ekki theim mun hrikalegar, mun bjarga ... hmm, heiminum eda eitthvad soleis
splunkunýr dagur
og svona líka ákaflega skýr og fagur! við mæðgur komnar í pils, sumarbol og sandala á leiðinni í leikskólann og háskólann og þegar við erum búnar að vinna ætlum við að leggjast á laugarbakkann ... til að hita upp fyrir spánarheimsóknina.
woensdag, juni 22, 2005
stuð
það held ég að verði stuð hjá mér í næstu viku að túlka niðurstöður. ég get svo svarið það ég held ég sé með eitthvað spennandi í höndunum!
áminning
kæru vinir og vandamenn,
eins og þið kannski munið ber afmæli mitt upp á miðvikudag í næstu viku. þá verð ég alein og yfirgefin hér í trekt þar sem rmb og bing fara til íslands á sunnudag til tæplega tveggja vikna dvalar. því vil ég biðja ykkur um að muna eftir mér og senda mér kveðju í pósti, tölvupósti, essemmessi eða hér, nú eða hringja í mig til að létta mér lífið.
með auðmjúkum kveðjum,
hugrún
bleikur í dulargervi
hjá rmb þýðir fallegt bleikt (með glimmer). þegar ég býðst til að bursta tennurnar hennar fallegu, segir hún þær bleikar með glimmer (kannski var ég nú búin að skrifa þetta áður, skittir ekki máli). í kvöld hafði faðir hennar á orði að maturinn væri fallegur og þá spurði prinsessan mín, sem von var, hvort hann væri bleikur!
...
ég er a-manneskja, svona sem vaknar ógnarsnemma og er hress og fer svo á skikkanlegum tíma í bælið ... en það er ansi djúpt á henni. nú, klukkan að ganga tvö, sit ég og hamast við vinnuna mína sem ég hef varla haft eirð í mér að sinna síðan ég drattaðist á lappir undir hádegi. mér til málsbóta get ég reyndar sagt að hér er eiginlega gjörsamlega óvinnandi vegna hita á daginn. en nú hamast ég og hamast og stífna og stífna. bráðum fer ég að sofa og sofa.
dinsdag, juni 21, 2005
maandag, juni 20, 2005
að hrökkva við
börn eru dásamlegir nemendur. opnir og tilbúnir að reyna nýja hluti og æfa sig endalaust þar til þeir ná tökum á viðfangsefninu. td þegar þau læra að standa upp eða ganga, alltaf að detta á rassinn, en reyna samt aftur og aftur ... áðan skruppum við rmb í stóra garðinn og á leiðinni þangað sagði sú stutta "ó, ég hrökk við" nokkrum sinnum ... en svo á heimleiðinni vorum við að koma fyrir horn á íbúðarhúsalengju eins og við búum sjálf í, áhyggjulausar og kátar með jarðarber í poka, og þá mætum við á horninu afspyrnu ljótum hundi sem er talsvert hærri en rmb. það er óhætt að segja að henni sé ekkert sérstaklega vel við hunda (eða dýr yfirhöfuð, litla skinnið) hvað þá þegar þau eru svona stór og ganga beint í flasið á henni. hún æpti upp yfir sig og faldi sig bak við mig. eigandinn kom á eftir hundi sínum og sagði að hann væri mjög ljúfur þótt hann væri stór. ég efa það ekki. en ég spurði telpuna mína hvort hún hefði orðið hrædd. "ég hrökk við."
stara
jamm, sit og stari á gögnin mín, voða rugluð stundum í kollinum mínum. sólin starir á allt og alla þessa dagana. fórum og létum hana skína á okkur í rotterdam á laugardaginn í tilefni þjóðhátíðardags íslendinga. ferðin þangað var erfið í hitanum, mikið ævintýri, en hafðist og við átum pylsur, prins póló og appoló lakkrís ... börnin léku sér og fullorðna fólkið líka. margir að flytja til íslands núna! bauðst far til trektar og í kjölfarið garðveisla. áttum notalega stund í garðinum og fórum svo heim að sofa. gerðum minnst í gær. nú er alvaran tekin við, en rmb er ansi kvefuð og því barasta heima í dag. það er svona þegar maður vill alltaf vera berleggjaður í pilsi og stuttum bol!
vrijdag, juni 17, 2005
fagn
gleðilegan þjóðhátíðardag, kæru landar, heima og heiman ...
við mæðgur horfðum á fjallkonuna og dáðumst að henni. þrúður var glæsileg! og svo er veðrið svo fallegt heima á fróni!
allir eru að gera því í skóna sína
hér kemur stuttur málfarspistill:
einu sinni vann ég hjá fjölmiðli við prófarkalestur og málfarsráðgjöf. starf mitt fólst bæði í því í laga skjátexta og fréttatexta að gildandi málreglum og -venjum, en einnig þurfti að laga texta þannig að þeir væri, læsilegir eða áheyrilegir (en ekki bara réttir). venjulega var samstarf okkar prófarkalesaranna við höfunda texta gott og nokkuð víst að við bættum oftast þá texta sem þurfti að bæta (reyndar voru sumar reglurnar sem við fórum eftir ansi stífar og olli stundum usla meðal viðkvæmra einyrkja í röðum þýðenda). á fréttastofunni ýmist las maður fréttatextana í tölvunni og leiðrétti fyrir textavélina, eða þá að við fréttamennirnir höfðum "fórum málförum" og "höfðum málfarir" (eins og einn fréttamaðurinn orðaði það). stundum lásum við fréttirnar á pappír og handfærðum inn leiðréttingar áður en fréttamaðurinn rauk inn í stúdíó til að taka fréttina upp eða lesa hana í beinni. fréttir sem voru skrifaðar í flýti innihéldu stundum óþarfa sem þurfti að hreinsa út osfrv. stundum var hraðinn doltið mikill og hasarinn og lætin ... þá var oft mjög skettlett (sérstaklega sérkennilegt andrúmsloft skapaðist á fréttastofunni þegar ser hætti að reykja). en ... allaveganna, ætlaði að segja frá því þegar ég las einu sinni texta fréttamanns (eða -konu í þessu tilviki) og hreinsaði út einhver smáatriði, ma var óheppileg innsláttarvilla í frasanum "að gera því skóna" sem ég þurrkaði út, en í textanum stóð "gera því í skóna". óneitanlega fyndin villa, að mínu áliti, en ég vildi síður að fréttin færi svoleiðis í loftið. fréttakonan flýtti sér svo inn í stúdíó að lesa sína frétt og ég settist aðeins og hlustaði ... og hvað heyri ég? hún les skýrt og greinilega "gera því í skóna"! annar fréttamaður sem var þarna frammi hjó eftir þessu og ég sagðist einmitt hafa leiðrétt þetta í textanum ... okkur fannst þetta báðum fyndið og sáum einhvern í anda pissa í skóna, hahahaha.
ég hef alla tíð síðan haldið að þetta væri algjörlega einstakt tilvik en rakst á þetta orðalag aftur á netinu nýlega og ákvað að gúgla því og sé að það er bara nokkuð algengt! íslendingar eru semsé farnir að gera talsvert í skóna sína! ullabjakk!
woensdag, juni 15, 2005
17 stig og sól
já, annars er veðrið hér ósköp huggulegt. en ég er nú bara með nefrennsli og hálsónot og þar að auki er greiningarvinna endalaus.
umhyggja
rmb er vön að tala við frumurnar í líkama sínum og spyrja þær út í hvernig gangi að laga hitt og þetta sárið eða hvort þessi eða hinn maturinn hafi verið góður fyrir þær osfrv. voða gott samband á milli þeirra. alla veganna, í gær skarst ég lítillega á fingri (svo að blóðið lak). þetta hvílir þungt á rmb og því lét hún sig ekki muna um að rabba svolítið við frumurnar í mér áður en hún fór berleggjuð í pilsi í leikskólann:
frumur, vilijð þið laga meiddið á puttanum á mömmu og toga blóðið inn í hana aftur.
maandag, juni 13, 2005
ljóð
elsku mamma
handa þér
yndis dóttir
bið fyrir þér
...
sirka svona hljómaði ljóðið sem elsku dóttir mín orti í fangi mínu í morgun. seinni parturinn ekki alveg alltaf eins en svona í áttina að þessu.
svo spjölluðum við við elsku áp í svíþjóð. rmb ætlar ekki að láta hana sleppa frá sér aftur "því þá sakna ég þín svo mikið".
vrijdag, juni 10, 2005
stór og sterk
eftir fulla skál af speldisgraut með hnetum, rúsínum, banana og kamel (þe kanil) fékk rmb litla skeið með lýsi að vanda:
mmmm, má ég fá pínu meira?
...
ég spurði hana annars í gær hvort hún ætlaði að verða eins stór og pabbi hennar.
nei, þá er ég maður.
woensdag, juni 08, 2005
veðrabrigði
holland á vinninginn yfir ísland í skjótum veðrabrigðum, ég get svo svarið það. nú sit ég úti á túni (sem er reyndar meira svona lokað port) og greini setningarnar mínar. er mest stödd á 16. öld með dæmi úr nýja testamenti odds. palestrina á tónana í tölvunni um agnus dei. svo viðeigandi eitthvað.
dinsdag, juni 07, 2005
ísland gamla ísland
í 66° norður flíspeysu og með sunnevu-gæruteppi, með rautt nef, kaldar tær og kalda putta(þó búin að næla mér í smáyl í kaffibollann). kannski verð ég fársjúk ... hei, þá kannski kemur andinn yfir mig og ég get skrifað meistarastykkið og allt! fátt er svo með öllu illt ...
donderdag, juni 02, 2005
lægð
sótt nýlega um starf sem ég vissi að ég fengi ekki. í dag barst bréf um að ég fengi ekki. hefði örugglega verið skárra í síðustu viku eða eitthvað, en þetta hittir illa á mig núna. þessi vika hefur ekki beint verið sökksess! ég vann yfir mig um helgina og á mánudag (ok, sunnudagur fór að mestu í að klæða mig í sarí og horfa á lagaan), sat hreyfingarlaus við tölvuna án þess að fara út í góða veðrið á laugardaginn (hitabylgja) og greindi og þýddi hundruð dæma frá 13. 16. og 20. öld. andlega er það erfitt, fjölskyldulega er það fúlt og líkamlega er það dauði. súperinn sagðist hafa áhyggjur af heilsu minni þegar hann sá hvað ég var búinn að koma miklu í verk á þriðjudag, en ég hugðist bæta mér upp hreyfingarleysið þá þegar og gerði nokkrar styrktaræfingar og fór svo út að hlaupa. það er skemmst frá því að segja að ég gafst upp eftir mjög stutta stund, komin með öndunartruflanir og ég veit ekki hvað. ég er gersamlega kraftlaus og búin á því enn og reyni bara að koma mér rólega í gír aftur.



