lagt í ann
gledileg jól hér og thar og alls stadar!!!!!!!!!
í hringiðunni
já, thad er kalt úti, en fagurt, aegifagurt. ríflega 600 ára gamall dómturninn fyrir utan gluggann á skrifstofunni okkar önnu tignarlegur og lék fyrir okkur rétt í thessu brot úr betlehemsstjörnunni hans áskels heitins, eda thannig laetur thad í mín eyru amk.
fyrir rétt taepu ári, á jólunum sídustu, eignadist maría mín litla, thá 2 ára, dúkkubarn. rétt eins og í adal jólasögunni fékk barnid hennar maríu ad heita jesú. vid vorum thá, hálffjölskyldan, enn í hollandi og thví var engin jólamessa eda neitt, ekki einu sinni í útvarpinu af thví ad engir voru hátalararnir á tölvunni. bara vid og maturinn og kortin og pakkarnir. thetta var samt ósköp notalegt, en vantadi samt eitthvad ... nú förum vid hjónaleysin ásamt maríu og jesú til íslands á thollák og förum í messu klukkan sex á adfangadag og sennilega midnaetur líka, jólakortalestur og jólapakkaopnun med (naestum allri) stórfjölskyldunni, jólaísinn hennar mömmu og jólasteikin, hver sem hún nú verdur ... dansad í kringum jólatréd (thrjár litlar stelpur og ein stór, í fyrsta skipti allar saman!) ... kannski kemur mas jólasveinn, og bara einfaldlega allt! nú er maría litla ordin hundleid á ad bída eftir jólunum og vill fá ad fljúga med vélunum sem vid sjáum á heidum morgunhimninum hér í aevintýralandinu.
ad drekka egils malt og appelsín sem álfrún mín hefur blandad í fallegu brúnu könnuna theirra mömmu og pabba med gylltu og hvítu skreytingunni ...
hann benni hinn, en ekki minn, theas ekki pabbi barnsins míns heldur hins íslenska barnsins á leikskólanum, er med ágaeta skýringu á thví hvers vegna hollendingar sjást varla med húfu. their eru ad passa hárgreidsluna, og hún er nú yfirleitt ekkert smá ljót madur.
rmb heyrði hana heiðu syngja siggi var úti í stundinni okkar í gær og svo endurtekið í dag, en fleiri skipti þarf hún ekki stúlkan, hún syngur það núna fullum hálsi! sama sagan með jólalögin. kann þau meira og minna öll, með hreyfingum og öllu saman. það skal tekið fram að hún lærir ekki íslensk jólalög í leikskólanum. hún er bara lítill snillingur, eða eins og hún segir sjálf með fullan munninn af appelsínu: ég er stórt barn!
ég verð að viðurkenna að það fylgja því ýmsir kostir að vera bara í sambúð með einu barni (hef reyndar prófað það áður). td er minna drasl, og minna draslað, minna er etið og því minna af mat sem þarf að kaupa, minna skitnar af þvotti og því minni þvottar og svo má nú ekki gleyma klósettpappírnum!!! hann endist mun lengur, sem er mjög gott af því að ég hreinlega þoli ekki klósettpappírsleysi. en það er samt talsvert mikið leiðinlegra ... verður gott að fá karlinn í kotið (og jólagestgjafablaðið líka).
fór með prinsessuna mína á sveitaball, öllu heldur alvöru íslenskt jólaball haldið úti í sveit. við tókum leigubíl að þessu sinni. þetta var mjög gaman, enda rmb á hátindi jólagleðinnar. hún hljóp um allt í fína jólakjólnum frá london og naut þess að vera sæt og fín.
jamm, þá er ég búin að missa af fyrri tónleikunum í hallgrímskirkju. skilst að þeir hafi verið frábærir. á morgun missi ég af hinum síðari. ekki trúi ég að margir áhugamenn um líf mitt og minna láti þessa tónleika framhjá sér fara. ég meina ... þetta er flottur kór og hljómsveitin geggjuð, stjórnandinn frábær og einsöngvararnir náttúrlega dásamlegir ... svo er nú tónlistin yndisleg, toppurinn!
snillingarnir í vinnunni eru búnir að laga tölvuna sem tengd er við augnhreyfingarannsóknartækið sem ég er að nota, en tölvan krassaði í síðustu viku. síðan þá hefur mér liðið hálfömurlega yfir þessu öllu saman þar sem það er undir þessari tölvu og tæki komið að ég geti sinnt vinnunni sem mér er ætlað og hef til þess tvo mánuði. á tímabili leit út fyrir að þyrfti að senda vélina til berlínar eða jafnvel kaupa nýja, eða nýtt tæki, sem kostar um 30.000 evrur! en, eins og ég segi, tókst irisi minni og honum theo að fixa þetta og ég get haldið áfram eftir helgi! þá er bara að vona að ég standi mig, en það er hitt áhyggjuefnið mitt ... og hefur ekkert upp á sig að senda mig til berlínar.
það er búið að vera ískalt hér í hollandi. hiti við frostmark, en í rakanum er það á við 10 stiga frost við íslenskar aðstæður. og þokan var seig, einhvern veginn mitt á milli lofts og vatns. ekki þægilegt að hjóla í vatni. ullarsjalið mitt hlýja varð strax blautt og því kalt.
kaffi er allra meina bót, þess vegna hugðist ég hella mér upp á þenna tyrkjadrykk til að hressa upp á sálartetrið, sem er heldur aumt eftir daginn. að uppáhellingu lokinni tók ég fram bolla, iittala bolla sem pabbi gaf okkur, tvo iittala bolla sem pabbi gaf okkur, mér og mínum, sem er ekki hér ... nema í anda.
við mæðgur erum bara tvær í koti. skrítið að vera heima hjá sér í útlöndum og eiga eitt barn uppi á loft og eitt í svíþjóð og kall á íslandi. ég veit að þorri lesenda er á leið á tónleika um helgina. vildi geta skipt við ykkur. en í einsemd minni hef ég kveikt á bbc, ættfræðiþáttur (doltið önnur ella en ættfræði á íslandi, maður minn) og í stað þess að skrifa eitthvað sniðugt, eins og það hvernig mér tókst að plata barnið til að sofa í mínu rúmi en ekki sínu (!) svo að ég þyrfti ekki að vera ein, tók ég persónuleikapróf. og ekki bara eitt heldur tvö. ég er nokkuð ánægð með útkomuna, enda ást og hamingja ríkjandi ... mmm, svo notó ... en samt allt of langt þangað til ég get kysst minn eina sanna großer herr ...
í dag er ferðinni heitið til den haag. síðast þegar ég kom þar við var það fyrir frægan misskilning minn á lestarsamgöngum, en við álfrún vorum á leið til schiphol og stukkum upp í lest á síðustu mínútu ... sem reyndist sem sagt vera vitlaus lest. allt fór þó vel að lokum og við komumst í tæka tíð á flugvöllinn. nú vona ég bara að mér takist að taka þessa sömu lest, þe rétta lest, og réttan lestarhluta líka þar sem hún skiptist á miðri leið milli rotterdam og haag. (svo fegin að þurfa sjaldan að nota flóknar almenningssamgöngur, hjólið er einfaldlega best!!) nú, alla vegana, við mæðgur ætlum í afmæli, 3 ára afmæli, til kjörtu, eins og ragnheiður maría kallar hann, enda ofvirk í u-hljóðvarpinu sem stendur. kjartan er sætur strákur sem á kyn sitt að rekja til tónlistarmanna, íslensks og pólsks, tilvalinn tengdasonur.
eins og sjá má á færslum gærdagsins var doltill mánudagur í mér í gær, ég trúði því reyndar statt og stöðugt í næstum allan dag að nú væri þriðjudagur, en svo reynist bara föstudagur kominn ... og hvað hefur þessi vika farið í? hlakka til helgarinnar. stutt vika að baki, eða þannig
sídan vetur, desember, og svo kemur vor eftir langa bid ... sem betur fer ... birtir í huga mér.
ekki beinlinis minn dagur, eda minir dagar nuna.