dinsdag, februari 27, 2007

dramadrottning á drómedara

í gær kom unglingurinn minn heim úr ævintýraferð á framandi slóðir. hefur nú komið til sahara og karþagó und alles. og við tekur grár hvundagur í borg óttans. en hún er kát. og þá er ég það líka.

woensdag, februari 21, 2007

land elds og ísa

hér úti í snjófjúkinu er verið að reisa orgel sem spúa mun eldi.

dinsdag, februari 20, 2007

lítil?

fengum bréf í síðustu viku frá menntasviði rvk
litla telpan er að verða skólastelpa
byrjar í skóla í haust
herregud!