woensdag, maart 28, 2007

frægð og frami



ég var á stórkostlegri ballettsýningu í borgarleikhúsinu í gær. litla krúttið mitt dansaði þar kisu. í morgun sýndi ég henni þessa mynd af stærri stelpunum sem birtist í morgunblaðinu og mín sagði þá, heldur súr: af hverju er ekki mynd af mér í blaðinu?

hún verður kannski bara að stofna nýtt leynifélag...

til hamingju!

með norðurlandaprístilnefninguna!!!

maandag, maart 26, 2007

...

það tók ótrúlega á í morgun að bregða sér í líki hins reiða múgs sem grýtti stefán píslarvott til dauðs á milli þess sem maður flutti af gleði, sorg eða einhvers annars konar tilfinningu drottni lof og prís í hinu mjög svo lítið umfaðmandi sönghúsi háskólabíói.
sýnu verraivoru þó átökin við að aka úr miðbæ í borgarleikhús og rölta um kringlu í ofboði meðan krílið ballettaðist, þótt vissulega hafi verið á því ýmsar bjartar hliðar. ss að hitta óvænt vinkonu, sem hringdi af næstu hæð einmitt þegar ég mundaði símann til að senda henni skeyti! líka skeytið sem mér barst og hljóðaði svo: væri fínt ef rmb yrði búin að pissa, jafnvel kúka, þegar hún kemur heim. nú styttist í að fína baðið okkar verði tilbúið!

zaterdag, maart 24, 2007

svooooo lööööng, sú stutta

sjáðu hvað ég er löng, ég er meirasegja langari en langafi!

vrijdag, maart 23, 2007

júhú!

það er kominn föstudagur ... og tvö partí seinni partinn í dag.

donderdag, maart 22, 2007

fátt er svo með öllu illt ...

heima hjá mér bólar ekki á baði og enn bið eftir því, eða sturtunni þe. en það eru komin sex gægjugöt á vegginn sem skilur að bað og svefnherbergi! það var ss mætt með kjarnabor í morgun, sá var eilítið minni en hann sigfús var alltaf með á grænlandsjökli, og stærðarinnar stykki tekin úr veggnum. ég var enn á nærbuxunum þegar maðurinn með borinn mætti ... en var ótrúlega fljót að skella mér í dress og út ;)
en þessi baðaðstöðuskortur heimilisins hefur haft þær ánægjulegu afleiðingar að ég hef drattast á brettið í kjallaranum í hádeginu og tekið hálftímarönn, 300 kaloríur segir græjan, hvað veit ég? ekki sér á spikinu, en lundin er létt og ekki veitir af þegar maður er á kafi hér í vinnunni að lesa lög um evrópsk samvinnufélög eða opinber innkaup eða hvað þau nú heita öll þessi ósköp sem voru samþykkt um daginn. en best að skvera því af svo hægt sé að birta lýðnum þau í stjórnartíðindum.

dinsdag, maart 20, 2007

af barninu III

og æfir sig ... þessa dagana æfir hún sig líka stíft í að skrifa, segist vera að læra að lesa eftir hljóðunum. veit ekki hversu mikið þetta er fyrir henni haft í leikskólanum, en hún er amk dugleg að hjálpa sér sjálf.
teiknaði með svörtum breiðum tússpenna mynd af nokkrum skvísum í hælaskóm og gallabuxum með sítt hár og löng augnhár og breiðar varir. allar héldu þær á "kristalskúlum" og mér sýndist vera mynd af andliti á þeim, kannski voru þetta nornir að sjá framtíðarkærastann í kúlunni? veit ekki ... en undir stóð GUL KLLTDAÐUR KLLTDAÐUR. ég spurði hvað stæði þarna, og svarið: fyrst stendur gul, og svo tvisvar gulllitaður ;) smart eða hvað?

af barninu II (rock chick)

börn eru bestu námsmennirnir, og þau vita það sem síðar vill gleymast að æfingin skapar meistarann. alltaf gaman að sjá börn sem eru að læra að standa upp, þau æfa sig í að standa upp hvenær sem færi gefst.
nú er mín að æfa sig í að telja upp í hundrað ... hún kann öll nöfnin en vantar þjálfunina í að muna að á eftir ...og níu kemur ekki ... og tíu, og þarf að hugsa sig um og ... svo kemur það. en hún kann ráð við þessu: hún æfir sig! og um daginn fékk hún mig í lið með sér og við lágum saman inni í rúmi og töldum upp í hundrað. og þegar við vorum komnar að kaflanum sem byrjar á áttatíu og ... fór rmb að hlæja og sagði að þetta væri eins og rokk! og ég hló með.

af barninu I

rmb: þessi maður vinnur í leikskólanum ... nei, ég meina hann er að vinna í leikskólanum mínum. hann er sko að laga eitthvað. hann er pípulagnalæknir.

donderdag, maart 15, 2007

farðu bara í hupp og hala!

tveir ungir úlfar brutust út úr girðingu sinni í dýragarði í svíþjóð í gær og leika enn lausri rófu í skóginum þar skammt frá, segir á mbl.is. hvernig verður það næst þegar fangi sleppur af hraunin og leikur lausum rassi eða rófubeini kannski?
rétt skal vera rétt!

woensdag, maart 14, 2007

fáðér konfekt, væna!

tannverndarstefna stjórnvalda í konfektmolum ... eða var það sykurmolum?

wittgenstein hvað?

dóttir mín, 5 ára, við ömmu sína:

ég veit allt sem ég vil vita.
ef ég veit ekki eitthvað þá langar mig ekki til að vita það!

maandag, maart 12, 2007

ekki blogg

hálfmisheppnuð hugmynd, verður að segjast, að þykjast reyna að blogga aftur akkúrat þegar maður er að drukkna í vinnu, rembist við að vera í skóla, baðherbergisveggirnir gráta og fjölskyldan þvær sér um hár og húð innan um hnífa og potta í eldhúsinu, hreinlætistækin liggja eins og hráviði um þegar ofhlaðna stofu ... og bara allt ... ekki laust við að manni finnist vera líf í tuskunum þegar svona stendur á.
(og það er ekki fyrr búið að skrá litlu stelpuna í vesturbæjarskóla en hún vill frekar fara í galdraskóla!)