dinsdag, juni 19, 2007

góð tónlist

er mannbætandi!
hér er góðverk dagsins:

maandag, juni 18, 2007

+/- 10?

í skópokanum eru tveir skór á hægri fót, annar númer 38, hinn númer 47 1/2. hlaupum dagsins frestað þar til síðdegis.

rmb um benna erlings: er hann að fagna af því að hann vann svona margar freyjur?

donderdag, juni 14, 2007

jæja

nú er sama hvað á dynur, ég verð alltaf fínni! gerði mér ferð upp á laugaveg og festi kaup á bestu vinum stúlkunnar. í sömu ferð uppfyllti ég jafnframt minn hluta samnings sem ég gerði við yngri dóttur mína í vor og hún er búin að rukka oft um. þannig er mál með vexti að hún á pleimó sem hún leikur sér gjarnan með. alls konar pleimókalla sem eru þó flestir kvenkyns. þarna eru mæður með börn á ýmsum aldri en líka prinsessa, henni fylgir reyndar prins, og læknir (kvenkyns allt svo). en dóttur minni finnst konurnar skorta kærasta. þess vegna hafði hún valið að fá eina ákveðna tegund pleimókalla í skiptum fyrir að vera dugleg að sofna sjálf í vor. og stóð sannarlega við sitt, hér fyrir nokkrum vikum ... eða mánuðum ... svo að nú sló ég til og fjárfesti í kassa einmitt eins og hana langaði í, sem inniheldur tvö kærastaefni handa gæðalegu pleimómæðrunum. hér eru kærastarnir.

hin djúpu vísindi????

rakst á þetta hjá nöfnu minni og jafnöldru sem líka er krabbi ... nema hvað hún er brjálaður hrútur innst inni. en svona er ég ...
Your True Sign Is Libra

Arty
Charming
Easygoing
Extroverted
A Total Flirt
Social Butterfly
A Total Chameleon
Friendly and Outgoing

hehehe

dinsdag, juni 12, 2007

tungumál

við fengum unga stúlku í heimsókn í gær sem talar bara ensku. rmb fannst nú bara gaman að reyna að gera sig skiljanlega í samskiptum við hana og ma heyrðist hún segja þessa setningu:
ví tala leisítán!

maandag, juni 11, 2007

taugar

gleði og ærsl samborgara minna hér úti á túni hafa sjaldan farið eins mikið í taugarnar á mér eins og í dag ... hopp og hí og trallalla, smábörn að hjala (börn í bala) og rónarnir þenja raddböndin (fólkið sem ríkið þarf að ala), glamur berst frá öllum nærliggjandi veitingahúsum og helv reykingafólkið hér fyrir neðan pústar eins og mófó. sjálf hef ég verið njörvuð niður við tölvuna, bundin í báða skó ...

varúð! hlaup

eftir vel heppnaða og viðburðaríka helgi fann ég mig knúna til að fara út að hlaupa ... kortéri fyrir miðnætti! þegar á fyrstu metrunum fann ég að ég var mun léttari á mér en þegar ég fer á morgnana. planið var samt að fara hægt yfir. ég sá fram á að ná ríflega hlaupamarkmiði dagsins, 6,4 km, ég ákvað að fara nesið, samtals 7,5 km, og leið vel á eftir. ég fór því 20 km í vikunni!
næstu helgi verður langa hlaupið 8 km.
annars er unaðslegt að vera á ferli á þessum tíma sólarhrings ... logn og fagurt útsýni til allra átta.

zondag, juni 10, 2007

líkams- og garðrækt

mig verkjar í líkamann eftir rækt gærdagsins. puð og púl í garðinum lengi dags.
enn er þó langt í að garðurinn verði augnayndi.

vrijdag, juni 08, 2007

lestur

rmb stendur sig vel í lestrinum. þetta byrjaði fyrir nokkrum mánuðum með fernum og kosningabæklingum og bókakápum en hefur færst yfir í bækur ... stafrófskver eldjárns-systkinanna er vinsælt, eins og hjá systur hennar. þar eru líka skemmtileg orð eins og rass og piss og svo er þar líka norn! úthaldið er reyndar ekkert svakalegt, enda ekki hennar karakter að kúra lengi yfir bókum. en það er gaman að fylgjast með hvernig hún áttar sig á framburðinum, hvernig hún tengir saman ólík hljóð sem mynda svo nýtt hljóð og hún fattar. hún á það líka til að skrifa eitthvert smotterí. um daginn stóð stórum stöfum HJARTAOGÖROGÁST og hún hafði enga hjálp fengið við það.

donderdag, juni 07, 2007

minning

a: manstu?
b: já, ég man ...
c: hvað manstu?
a og b: sjampóið man!

woensdag, juni 06, 2007

tilfinningar

ég græt yfir bókum, bíómyndum og heimildamyndum en ekki yfir dægurmálaþáttum.
segi ekki meir.

dinsdag, juni 05, 2007

tengsl

ég er að lesa tvær mjög ólíkar bækur, eða hlusta á aðra og lesa hina. í þeim báðum er frásögn manns sem lifir af fáránlegar aðstæður, manns sem í raun bíður dauða síns, einn í óbyggðum í asíu en kemst lífs af annars vegar af eigin rammleik og hyggjuviti, hins vegar fyrir yfirnáttúrlegt hyggjuvit félaga síns. migið er á báða mennina.

maandag, juni 04, 2007

mánudagsmorgunn í vesturbænum

lítil stúlka er að búa sig í leikskólann en er ögn öfugsnúin, finnst hún ekki alveg fá nógu góða þjónustu.
stúlka: er ég öskubuska, eða hvað? þú lætur mig gera allt.
móðirin: öskubuska fékk nú ekki að fara í leikskóla.
- þögn -
stúlka: öskubuska var ekki í leikskóla. hún var fimmtán ára, afsakið, að taka til var vinnan hennar.

vrijdag, juni 01, 2007

daginn eftir

gaman í gær. kraftmikið fjör og skemmtilegt. sætir strákar og stuð. algjörir töffarar.

lét mér ekki nægja eitt vínglas og sýp seyðið af því í dag.