woensdag, april 27, 2005


rmb finnst gaman að hlaupa hringinn í kringum húsin Posted by Hello

dinsdag, april 26, 2005

ógeð

hver sá sem á leið um trjágarða og skóga um þetta leyti árs hér í hollandi og víðar gæti orðið fyrir árás blóðsugu

maandag, april 25, 2005


allt í blóma Posted by Hello

hvorki hné

ef allt væri með felldu færi ég út að hlaupa núna til að bjarga sinninu, en ég þarf að hvíla hnéð. er að fara að hitta súperinn minn á eftir og er ekki alveg í gír. kannski reddar eitísið því.

zondag, april 24, 2005

táningur

depeche mode, kajagoogoo, style council, talk talk, talking heads, tears for fears, king, soft cell, clash, eurythmix, human league ... hverjum má ekki gleyma?

zaterdag, april 23, 2005

helgarvinna

ég sit við og lofta út hugmyndunum sem hafa verið að gerjast í mér undanfarið. gengur svona og svona. úti skín gul sólin alveg svakalega skært (ekki ský að sjá), benni fór út að hlaupa, mótíveraður af mússíkinni, rmb hleypur inn ("mamma, það er kónguló") og út, er sko að skreyta vegginn í garðinum, þvotturinn ilmar þar úti, gulur og rauður, en ég hef semsé hangið fyrir framan skjáinn á gulum skóm, rauðum bol og náttbuxunum! á morgun er aftur hagarferð á dagskrá, annað 2 ára afmæli mas! vei!!!! en nú þarf ég að halda á spöðunum svo að ég geti ýtt á send.

meira sumar

komin með freknur á ristarnar, ergó: það er sumar og sól á svölunum. við stefnum á grill í garðinum í kvöld.

donderdag, april 21, 2005

gleðilegt sumar

nú er klukkan að nálgast tíu hér í trektarborg, sólin skín og feðginin eru farin í vinnu/skóla ... og þá er ekki um neitt annað að ræða en koma sér að verki, hér eru engin grið gefin þótt sumri sé fagnað á lítilli fallegri eyju norður frá. sumarið er tíminn, og nú er sumarið tíminn sem ég verð mjór master og öll fjölskyldan verður sameinuð á ný í vesturbænum, innan um gömul hús og fjöll og sjó og fólk sem talar íslensku og við söknum nú.
en takk fyrir veturinn, fjölskylda og vinir í öðrum löndum og borgum, og gleðilegt sumar. sjáumst í því!

woensdag, april 20, 2005


stelpa strákur og pabbinn, dags. 30.03.05 Posted by Hello

spakir

góð grein eftir gauta í mogganum.
...

að öðrum spakmælum, þessi eru í boði stóru systur:
vertu þrautseigur og þolinmóður, láttu ekki áhugann dofna
og eyddu aldrei tíma til ónýtis.

dinsdag, april 19, 2005

í stormi og hríð ... eða þannig sko

það er grenjandi rigning úti. tók næstum tvo tíma að sækja barnið í leikskólann. ég hjóla alltaf mun hægar við þessar veðuraðstæður og svo þurfti að klæða barnið upp á nýtt í leikskólanum. hún bæði kúkaði og pissaði í fötin sín, ekki samtímis! gerist ekki oft. á heimleið sofnaði hún á hjólinu og við þurftum að fara í búð. var í spreng í búðinni og alla leið heim og vorum aðeins of seinar ... nú hámar hún í sig hrísgrjónagraut með rúsínum og kamel, pepperonipítsa handa mér í ofninum og rauðvín í glasinu mínu. heimilispáfinn er í vinnu í kvöld á voðafínu sveitahóteli.

maandag, april 18, 2005

gláp

lokaþáttur six fít önder seríunnar var í gær. mun sakna hans, enda vúndersjön. væri til í að eiga alla þættina.
á íslandi hefði ég hins vegar valið að sjá magdalenusysturnar. það er átakanleg mynd.

væn viknamót að baki

á föstudag var veður indælt. við mæðgur ætluðum í sund, en laugin reyndist lokuð. gengum þess í stað í bæinn ásamt húsbónda vorum. við hjónaleysin horfðum á vídeó og jónatan ross fram yfir háttatíma.

á laugardag svaf ég heldur lengi, enda var leiðindaveður, grenjandi rigning lengst af og hvasst. fórum til hagar í 2 ára afmæli og nutum þess að hitta aðrar almennilegar manneskjur. lásum á bók og tölvu en gengum til náða á skikkanlegum tíma.

á sunnudag vaknaði ég á undan öðrum (sem er afar fáheyrður atburður og því full ástæða til að nefna það, það er nefnilega svoltið það sem dagbókarkorn ganga út á: að greina frá því afbrigðilega ... eða hvað?). veðurútlit bærilegt. lagði lokahönd á undirbúning kennslunnar, fengum okkur búst og kaffi. kenndi kannski síðasta daginn minn (á eftir að sakna krakkanna, en fagna tímanum). björg&helgi komu með börnin, gaman að hitta enn fleiri almennilegar manneskjur. við sátum úti á terassi og sötruðum bjór og borðuðum brauðmeti. lásum og skrifuðum. nú er ég búin að ýta á send og fer til hinna í draumalandið.

nokkuð góð helgi, bara.

vrijdag, april 15, 2005

meistaraverkir

það er ekkert grín að vera námsmaður. ég sveiflast stöðugt milli vinkla á viðfangsefni mitt, sem er orsakatengingar, og nú er ég að hugsa um að taka ákveðinn málsögulegan vinkil á þetta. sem er náttúrlega skemmtilegast af öllu. ég les og les um grammaticalization (málfræðsla á íslensku, nei, djók) og fleira og reyni að verða einhvers vísari ...

woensdag, april 13, 2005

hræðilegar sögur

pabbinn að segja mömmunni hvað stelpan þeirra er fyndin: um daginn bauð ég rmb að velja hvort hún vildi heyra hræðilega sögu eða fyndna sögu. þá sagði hún: "hræðilega sögu og fyndna sögu." hún er nú sniðug í samningum, hahaha.
rmb: nei, ég sagði "hræðilega sögu sem er fyndin."
(rmb hefur erft nákvæmni sumra í fjölskyldunni, og herfilega gott minni, en hafa skal það sem sannara reynist.)
...
á hjólinu úr leikskólanum fyrr í dag, í ausandi rigningu.
mamman: eruð þið ramy góðir vinir?
rmb: nei, vinkonur.
mamman: af því að ramy er strákur eruð þið vinir.
(þögn, mjög stutt þó)
rmb: af því að ég er stelpa erum við vinkonur.
...
þótt rmb sé bleik prinsessa með glimmer og klæðist aldrei buxum, fyrir utan nærb- og sokka-, vílar hún ekki fyrir sér að stökkva í önnur lönd, sjálf ævintýralöndin, til að berjast við illfygli og annan ófögnuð og bjarga prinsunum.

maandag, april 11, 2005

jessss

ég var alvarlega að hugsa um að leggja mig nú síðdegis þegar í mig hringdi maður og sagði mér að fara út að hlaupa. ég kvartaði undan þreytu en þar sem ég er hlýðin með afbrigðum skellti ég mér út, á stuttermabolnum, og sé sko ekki eftir því. fuglasöngur, tré í blóma, fólk að leik og sólin speglaðist á síkjunum ...

feluleikur

með hendur fyrir augunum sér mig enginn

sambönd

í þáttunum siks fít önder eru einhverjir flottustu karakterar sem ég hef séð á skjá. sannir, heilsteyptir, glíma við trúverðug vandamál og áleitin. hver öðrum æðislegri og leikararnir ... klikka ekki. það er bara einn þáttur eftir í seríunni ... og lísa er enn týnd! hvar er hún? hvað kom eiginlega fyrir?

vrijdag, april 08, 2005

nærbbuxur

"nærbuxur eru buxur og nærb!
nærb-buxur."
gott efni í málvísund!

donderdag, april 07, 2005

eiður og prinsessan

"mér finnst bleikur litur fallegur. ekkert annað litur finnst mér fallegt. mér finnst glimmer líka fallegt. prinsessan er í bleikum kjól með glimmer og bleikum skóm með glimmer, prinsinn er í bleikum fötum með glimmer og svörtum skóm með fjólublátt glimmer."
...
þegar við rmb vorum sofnaðar í gær hófst leikur í sjónvarpinu, tjelsí-bæjern. ég kom niður til að kúra hjá mínum manni og horfa á leikinn, sem var ekkert tiltakanlega skemmtilegur, fyrir utan nokkrar góðar sendingar eiðs og glæsileg mörk lampans. okkur gekk ss vel (við erum tjelsí) eftir leikinn var síðan skeggrætt um frammistöðu einstakra leikmanna og gang leiksins (í sjónvarpinu alltsvo!!), eins og lög gera ráð fyrir, auk viðtala við tvo leikmenn tjelsí. fyrst við eið á hollensku!!!! og svo á ensku við lampann. eiður var bara nokkuð flúent í hollenskunni (meira en sagt verður um suma). flottur, strákurinn hans benna!
...
við rmb ákváðum að taka frí í leikskólanum í dag. kúrðum lengi en nú ætla ég að vinna vel meðan prinsessan leikur sér með nýja boltann.

es. ef maður frestar því að taka smáar ákvarðanir of lengi breytast þær í stórar, stundum svo stórar að þær virðast vaxa manni yfir höfuð.

woensdag, april 06, 2005

þetta er allt að koma

fór út að hlaupa í dag (áður en fór að rigna) og í gær fór ég í frábæran jógatíma. ég var líka nokkuð bræt í tíma í gær svo að allt er í orden ... eða næstum. það þarf að fara að koma einhverju konkretu á pappír svo að hjólin fari að rúlla betur. en nú þurfa hjólin að fara rúlla útí áthof að sækja prinsessuna.

kvíði

stórákvörðunartaka. úff!

dinsdag, april 05, 2005

2005

árið í ár útleggst með rómverskum MMV.
svo skemmtilega vill til að mmv er einmitt skammstöfun markmiðs míns:

mjór er mikils vísir!

verður gaman að koma heim bæði mjó og margs vísari.

maandag, april 04, 2005

ég vann!

loksins sigraðist ég á letinni og fór út að hlaupa, eftir nærri 2 vikna hlé! í fyrramálið er það jóga.

leppalúði lifir!

jæja, þá erum við aftur þrjú ... yfirgefin. síðasta vika var frábær! veðurblíða í niðurlöndum, lítil vinna hjá húsbóndanum, húsmóðirin í lágmarksálagi og litlu stúlkunni hreinlega gefið frí til að geta verið sem mest með systur sinni! mikil leti og ljúflegheit, en við eyddum líka heilum degi í efteling. ég mæli með því! nú er áp farin aftur til bræðra sinna í uppsala.
í morgun sagði litla stelpan: hvar er systir mín? en yfirleitt kallar hún hana systur sína ... sem er svolítið sætt.
þetta er sannarlega vont, en það venst og, það sem meira er, það tekur brátt enda!
annars lagði rmb fram þá hugmynd í gær að jóngoli (jón logi) yrði bara líka hér, svo að hvorugt þeirra þyrfti að sakna stóru systur.
...
að öðru:
pabbinn: þessi maður heitir fisher.
nei: nei, hann heitir leppalúði.