woensdag, juni 21, 2006

heimsborgari?

gaman að fara með maraþonpæjunum út að hlaupa í hádeginu (þótt hlussusyndrómið segi til sín eftir of langt hlaupahlé). nýi gallinn alveg að gera sig, mittisæfingar í hljómskálagarðinum, sturta og steiktur fiskur. gekk svo yfir austurvöllinn með svört sólgleraugun á nefinu og svart kaffið í hendinni ... samt bara í henni reykjavík, og stolt af því.

woensdag, juni 07, 2006

veðrabrigði!

á morgun yfirgef ég rigninguna og rokið og held í rómantíkina á suðlægari slóðum, nánar tiltekið til parísar með kærastanum.
en þangað til eru það lög unga fólksins,
au revoir!